Inga Rún

Ég er bloggari

17.01.2007 10:51:04 / ingarun

NÚNA er hitt bloggið orðið að því næstnýjasta......

Hvernig skal maður byrja að blogga? er farin að hálfhrörna í þessu;) allavega var ég að koma heim úr prófi, það gekk bara mjög vel, er aðeins smeyk um stærðfræðina en það verður ekki aftur snúið, þetta reddast!! Er kannski ekki búin að vera eins dugleg að læra eins og til hafði ætlast en þannig hafa próf alltaf verið hjá mér, hef samt ætlað mér að læra smá í dönsku og íþróttum í dag þar sem ég hef nóg tíma.

Utanlandsferðin okkar stelpur! hún er búin að ganga upp og ofan skal nú segja, við ætlum að láta mömmur okkur hittast í kvöld held ég alveg örugglega og þá verða einhver mál rædd. Foreldrar mínir, og þá sérstaklega hann faðir minn, eru ekki sem kátastir, en þetta verður bara allt að koma í ljós. Vonum það besta:)

Jáá svo er ég byrjuð að vinna aðeins í Hrísalundi svona með skólanum, á árinu fæ ég bílbróf og bíl og maður þarf að fara safna smá;):lol:

En, já.... ég veit ekki hvað skal segja meir. Bara lífga þessa síðu aðeins við. Tékkið hinsvegar á -dirtypanties, þar eru myndir frá áramótunum;) hef ekki gert neitt síðan heh... ég blogga kannski í næstu viku. ÞEGAR ÉG VERÐ BTW Í FRÍI, jamm það verður geggjað! sjáumst!

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.12.2006 20:28:43 / ingarun

Nýjasta bloggið (sem verður vonandi á næstu dögum það næstnýjasta)

NÝJAR MYNDIR (ómerkilegar)

Jólafríið er komið! Samt sem áður verður það fljótt búið aftur svo að....


Lítið að frétta. Helgin var róleg, á föstudaginn kom Hildur til mín um kvöldið og við bjuggum til munnlegt verkefni í dönsku, það er alltaf jafn fáránlegt hehe. Við vorum sko kærustupar og áttum að vera ósammála um hvar við ættum að vera um jólin. Mig langaði sko að fara til útlanda en Hildi langaði að vera heima hjá fjölskyldunni sinni því afi hennar var svo veikur. Jæja.... Við leigðum svo Just my Luck með Eyrúnu og Völu, hún er mögnuð :)

Laugardagurinn var... já... fínn. Ég fór til Kollu um daginn og við vorum að letingjast uppi í rúmi og tala um allt möööögulegt, alltaf jafn þægilegt :* en já svo fór ég heim og um kvöldið bauð Tinna mér í bíó á The Holiday, hún er líka mögnuð :)
Eftir myndina fórum við Tinna heim og stuttu seinna komu Eyrún og Linda. Ég ætlaði að fá mér smá að drekka, en nei.... nennti því ekki. Hvað er að verða um mig??? Segi svona... allavega þá gerði ég ekki mikið. Hákon kom aðeins með nokkra vini sína en þeir nenntu ekki einu sinni að vera hjá okkur, það var svo leiðinlegt:haha:
Sunnudagurinn var þreyttur en ágætur. Við Hákon lágum í leti heima ásamt Lindu og svo komu Elvar og Haukur, seinna var ég ein með Hauki og Hákoni en hann Haukur gleymdi nú alltaf að koma Lindu feitu á óvart með ástar/gredduskilaboðum á skjánum hennar, jæja... skiptir ekki.

Já ég er semsagt að tala um helgina á miðvikudegi. En þegar ég kom heim úr skólanum fór ég aðeins að laga til og breyta í herberginu mínu. Það er bara orðið býsna kósý, á bara eftir að setja hreint utan um rúmið mitt (ég var ekki að segja ykkur þetta).
Nú er komið nóg af leiðinlega söguhorni Ingu, en þið eruð ekki svo auðveldlega sloppin þar sem þið eigið eftir að kommenta þetta glæsilega blogg. 'Eg er ekki frá því að þetta sé vinsælasta síðan í bransanum í dag ;)

Hilsen....... Gleðileg jól (ef ég blogga ekki fyrr)

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.12.2006 15:46:08 / ingarun

12 dagar til jóla

Jebb, enn styttist í blessuðu jólin. Mér finnst ég ekki hafa tíma til þess að skreyta, baka, þrífa og annað því ég er alltaf að læra:$ en þýðir ekki að kvarta, ég valdi mér nú þennan skóla;)

En já..... var í frönskuprófi í dag, munnlegu hehe! það gekk svona, já, maður þorir kannski ekki að babbla með frönskum hreim en hún sagði samt að við Hildur hefðum bara staðið okkur mjög vel :)

Ekki mikið að frétta, ég á enn eftir að kaupa nokkrar gjafir en samt búin með einhverjar:) manni fer nú að hlýna í hjartanu svona þegar skammdegið fer að lýsast með jólaljósunum, hehe. Svo er það bara spurningin hvað ég fæ í gjöf? ég veit um einhverja sem eru búnir að kaupa en mér dettur ekkert hug, enda er það ekkert gaman sjá fyrr en á aðfangadagskvöld. Svo eru það bara áramót og við í familíunni ætlum að vera heima hjá Huldu og Árna, jamm jamm, það verður örugglega rosalega gaman eins og í fyrra:)

Var að pæla hvað allt hefur breyst á þessu ári. Ég eignaðist kærasta, Lilja eignaðist kærasta, Hildur hætti með kærasta, við stelpurnar fórum í sinn skólann hver og ég veit ekki hvað, samt sem áður er lífið bærilegt þó maður sakni nú sumarsins eftir 9. bekk, unglingavinna fram að hádegi, sund eftir hádegi, búa með kollu og djamma djamma djamma. Lífið ljúfa:)

EN blessó, verð að kveðja núna. Ekki láta ykkur koma á óvart ef ég verð ódugleg að blogga. Nema auðvitað ef þið kvittið;)

» 8 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 16:32:33 / ingarun

Lilja á afmæli

Life stays the same, alltaf. Vá þetta fer að verða vandamál. Ég fer í skólann á morgnanna, læt mér leiðast við að læra, fer heim og fæ mér að borða, læri (nema í dag, jessss), fer í sturtu, borða, fer heim til Hákonar. Dagurinn búinn. Um helgina ætla ég að gera eitthvað skemmtilegt8)

Annars á hún Lilja sæta afmæli í dag, til hamingju ástin :*

Æji.. nenni ekki meir, Beverly Hills. Elska þessa þætti.

Kvitt

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 00:50:05 / ingarun

Komin aftur, hér hefur ekki verið blásið úr nös í háa herrans tíð....

Jæja, ég ákvað semsagt að byrja að blogga aftur, alein. Það verður gaman að sjá hvernig heppnast, annars hef ég átt þessa síðu og síðasta blogg sem sést er einmitt næstum fyrir ári síðan. Ég trúi ekki að jólin séu virkilega að fara koma.... AFTUR.

-Dirtypanties er orðin hálfdauð þar sem Lilja er orðin letibloggari og við Linda líka eiginlega. Sú síða mun samt ávallt lifa í hjarta okkar ekki satt?;)
www.blog.central.is/clean-panties er heljarinnar síða, Elfa sér um að halda henni uppi;)

UM helgina fór ég með Maju systur, Adda manni hennar og syni þeirra Alexander, til vores hovedsted. Reykjavík. Kolla kom heim frá Ítalíu um helgina og ég hef ekki enn fengið tækifæri á að hitta hana þar sem ég virðist alltaf vera að brasa eitthvað með árshátíðina eða eitthvað þangað til á kvöldin, sorry love ég bæti þér það upp strax um helgina :**
Allavega þá keypti ég nokkrar jólagjafir og ég hafði það bara mjög notalegt, ég ber nú viðurnefnið barnapían. Við hlustuðum á jólalög allan tímann og ég er sko komin í svolítið jólaskap og hlakka til að fara undirbúa. Hluti af því er þegar fjölskyldan mín safnast saman og býr til laufabrauð, þá fyrst veit ég alltaf að jólin fara að nálgast.;)

....En nóg um það, ég held ég slútti að þessu sinni og kem með svo eitt eldheitt á næstunni. Árshátíð á föstudaginn, það verður örugglega bara skítsæmilegt.

Kær kveðja, ykkar Inga

Note=Muna að kvitta



» 8 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 09:56:46 / ingarun

:)

Smá svona comeback hérna, en já hef aðallega bara ekkert að gera því ég er heima veik:whut: búin að vera það alltof lengi shhh...

Ég hef alveg ágæta tilfinningu fyrir helginni þó svo ég viti ekki alveg hvað ég geri... en í dag fer ég allavega í litun og plokkun þannig að maður verði sem sætastur úti á lífinu.. segi svona:)

En bara láta vita að ég sé á lifi verið bara dugleg að kvitta elskurnar!

Svo ætla ég að láta svona smá vinakeðju hérna sem ég fékk í póstinum minum í morgun, endilega lesið þetta þegar þið nennið og segið hvað ykkur finnst og svona:)

Þú hittir ótrúlega margar persónur á lífsleið þinni,
en það eru bara sannir vinir sem skilja eftir spor í þínu hjarta.
Til að geta stjórnað sjálfum þér, notaðu hugvitið;
Til að stjórna öðrum, notaðu hjartað.

Gáfaðar persónur tala um hugmyndir.
Minna gáfaðar persónur tala um hvað gerðist.
Illa innrættar persónur tala illa um aðra.

Sá sem tapar peningum missir mikið.
Sá sem missir vin tapar miklu meira.
En sá sem missir trúna á lífið sjálf, missir allt.

Við erum vinir þú og ég, ef þú tekur vin þinn með erum við þrjú.
Við getum stofnað lítinn vinahóp.
Það er jú ekkert upphaf og enginn endir,
njótum lífsins og verum góð hvort við annað því lífið er svo stutt
þrátt fyrir allt og þess vegna ætti ekki að vera tími til að tala illa um aðra.

Öll dýrin í skóginum vilja vera vinir og við mannverurnar

í okkar frumskógi freistinga lífsins viljum líka vera Vinir og góð hvort við annað.

Dagurinn í gær er liðinn.
Morgundagurinn er óvænt ánægja.
Dagurinn í dag er gjöf.

8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 17:28:58 / ingarun

eeeerum við að tala um blogg

Jebb blogg..........................................

Árshátíð í síðuskóla á föstudaginn, opið ball kl 21:00 mætið:):):):):)

8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 18:49:25 / ingarun

Góðan dag!

Jáá langaði skyndilega svo rosalega að blogga:D Helgin var mjög fín bara afmæli og tjill hjá Tinnu og svona;) en já ekkert að frétta vil bara láta vita að ingarun lifir enn:D eða þraukur:$ segi svona haha!

Skólinn alltaf jafn skemmtilegur og núna styttist í árshátíðina, sem er fjör:)

En það er kominn matur, þetta er svona mínútu blog haha:D

Hafið það gott -Inga;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.01.2006 22:52:31 / ingarun

hæ folks!

Jæja er þessi alveg að deyja eða?;) mér sýnist það á öllu svona hehe svona miðað við allar heimsóknirnar í dag!

Annars er bara það fína að frétta hjá mér sko, nema það að ég lít út eins og skrímsli því ég er með sýkingu í vinstra auganu, talaði við einhverja konu í dag sem vissi bókstaflega allt um augu og ég á að koma til hennar eftir viku í eitthvað tjekk, linsuprófun eða eitthvað hehe og ég þarf að nota gleraugun þangað til.. þess vegna vona ég ykkar vegna að þið sjáið mig ekki mikið næstu vikuna haha, jáá svona er líf mitt merkilegt alltaf;)

Í kvöld var ég bara heima en fór svo til Maríu og þar voru einnig Elfa, Tinna og Lilja og tölvan!! :haha: það var nett chill skoh!! Annars var ég bara að koma heim

En já ég nenni ekki að vera setja myndir inná þessa bara þægilegt að eiga þessa.. þó svo það sé enginn tilgangur í því haha.. tjekkið á skoðanakönnun það er interesting

Jaaaah svo bara helgarfrí á morgun jess, það verður samt rólegt hjá mér, er að fara með hele fjölskylden í leikhús. Maður er svo menningarlegur;)

Jæja þetta er komið nóg held ég, góða helgi dúllur8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.01.2006 01:06:47 / ingarun

2006?

hjaaah ég kom með þetta ágæta áramótablogg á dirtypanties svo ég ætla ekkert að vera tjá mig neitt meir um það :)

Fríið er búið að vera alveg æðislegt, það helsta sem ætti að nefna er auðvitað aðfangadagskvöld, jólaboð, potturinn hjá lilju, djamma smá og áramótin að sjálfsögðu og já klára bókina "nóttin hefur þúsund augu" eftir Árna Þórarinssin ;) (speki)

Alltaf þegar eitthvað skemmtilegt er búið finn ég mér eitthvað annað til að hlakka til og það mun vera páskafríið haha en það er nú svo langt þangað til og afmælið mitt, en það er lengra þangað til :) svoo ég held ég segi bara árshátíðin okkar sem verður eftir rúmlega mánuð og já það er bara margt sem á eftir að gerast ;)

Ég hef svona oft spáð hvort maður eigi að lita sig dökkhærða, en ég veit ekki hvort það fari mér vel.. eitthvað vit í mér? endilega kommentið dúllur ;) ég þori heldur eiginlega ekki að sleppa ljósu lokkunum tíhí en já bara svona sjá hvað ykkur finnst? :)

Var að virkja nýja skoðanakönnun, endilega takið þátt... reyndar bara eitthvað bull en só :D8)

Góða nótt :haha:

» 8 hafa sagt sína skoðun

29.12.2005 13:51:06 / ingarun

Heeey já ég á víst þessa ennþá..

Jæja kæru vinir, ég er búin að vera slök í blogginu ég veeit :) en við stelpurnar erum verulega duglegar að blogga á dirtypanties ;)
Jólin eru búin að vera mjög góð hjá mér og ég fékk fáa en góða pakka :)
Næst taka áramótin við en það verður vonandi stuuð..
En já gleðilega hátíð ;* :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 21:28:11 / ingarun

gledelig jul

já gott fólk, aðeins 4 dagar í jólin en samt er klukkan hálf 10 svo að það eru eiginlega þrír :) í morgun voru litlu jólin, við byrjuðum á því að fara inn í sal og horfa á helgileik hjá 6. bekk sem er alltaf gert :) en síðan fórum við inn í íþróttasalinn og dönsuðum kringum jólatréð, við Hildur vorum orðnar eitthvað pirr á því hvað enginn vissi neitt og og það fór aldrei neitt í sömu áttina haha :D djöss síðuskóla pakk marr dööö ;)
En allavega þá var jú tjúttað og trallað og svo fórum við öll inn í stofuna okkar og hlustuðum á jólasögu með kerti og kósý :)
Svo fengum við kort og pakka! maður ætlaði nú að vera duglegur við kortin þessi jólin því þetta er nú síðasta árið en nei fæ ég bara 3 kort eða eitthvað hehe eða sko frá Elínu, Írisi, Lindu og Hildi.. Takk stelpur mínar :D ;*
Svo fór ég heim, pakkaði inn nokkrum gjöfum fyrir mömmu og er svo búin að vera að laga til í aaallan dag jú fara í gegnum allt, vá hvað er miikið af dóti sem safnast saman hehe.. en ég og Linda vorum að skipta um herbergi svo ég fái meira næði því hún er nú sjaldnast heima hehe eða um helgar allavega ;)
Jáá ég nenni ekki meir þarf nú að koma mér betur fyrir hérna svo það sé eitthvað hægt að slaka á á morgun og gera eitthvað dúlló.. :)

Minni á bloggið hjá mér og stelpunum, dirtypanties ;);)



» 8 hafa sagt sína skoðun

17.12.2005 19:54:09 / ingarun

shhh

Jæja já ég blogga hér;) Finnst þessi síða ekki vera alveg að standa sig, ég, Linda og Lilja erum komnar með nýja bloggsíðu: http://www.blog.central.is/dirtypanties haha ;)

En ég er nú ekkert hætt með þessa, ég er hörkubloggari 8) svo verður maður bara að bíða eftir einhverju skemmtilegu til að setja hérna inná og á nýju síðuna líka..

En já séé ykkur seinna :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 15:26:37 / ingarun

Próf já

Hellú, jæja núna er aðeins 1 próf eftir. Samt bara hjá nokkrum því ég er í einhverjum samfélagsfræði hóp, svekkjandi ;)

Annars búið að ganga svona ágætlega, í morgun var enska og eftir það fóru ég, Linda og Halla heim til okkar, vorum bara eitthvað að hanga elduðum okkur svo pasta og horfðum á nágranna, ömurlegt hvað Stu hefur það leitt þessa dagana :$

EN er farin að læra bæjó :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

13.12.2005 11:40:23 / ingarun

buhu

Fyrsta prófið búið aah, en það var stærðfræðin og hún var dálítið erfið :S skildi ekki neitt í xy í öðru blablabla og þannig hehe. En kl 1 er próf í þjóðfélagsfræði, svo er held ég danska og íslenska á morgun, létt hehe :)

Minni aftur á nýju myndirnar í "Stelpukvöld hjá Lilju"

Svo var ég að virkja nýja skoðanakönnun hehe maður verður að gera eitthvað við þessa síðu sko ;)

En ég kveð í bili bæjó

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5